mad driver
Gagnlegt :P
Dægradvöl þegar Sumt fólk nennir...
29.11.2007 20:59:26 / skripo

æji já ég var víst með bloggsíðu :O

hmm long time no see .....

er latur við að blogga, en hér er það sem hefur verið að gerast:
ég er staaddur á reykjalundi í endurhæfingu sem er mestmegnis líkamsrækt því fólkið hérna veit ekkert hvað á við mig að gera
svo basic dags plan er svona : líkamsrækt í lyftingarsalnum , íþróttir í leikfimissalnum, út að ganga 4 km á þrek hraða, og svo er það í sund og taka svoldið á því og fara svo í pottinn og slaka á

annars er lítið að frétta af mér, ef þið viljið einhverjar fréttir er ég alltaf með síman ;)

No pain no gain :P

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 06:17:02 / skripo

Howdy

Gleðilega páska er víst sagt á þessum tíma árs , er það ekki annars ?

héðan er mest lítið að frétta nema þá einna helst að það er búið að vera vandræði með nettenginguna, þannig að ég hef verið lítið inná :(
svo erum við stjúpi búin að vera að vinna í því að mála "nýja" landcruiserinn til að hafa hann tilbúinn og svo er það bara það bara þetta vanalega.....
gefa kinfunum og það sem er tilfallandi og svo vera í einhverjum tölvuleikjum sem ég er löngu buin að fá leið á en Well...

gerður það er alltaf skamm á þig ;)
gullveig, verðlaunin eru koss, frjálst val um hvort það er frá mér eða hundinum mínum og staðsetningu verður að semja um :P


anyway's nenni ekki að blogga en varð að gera það afþví að Berglind skipaði mér að gera það :P:P :D

» 8 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 04:12:25 / skripo

duhh

frétta af mér er nú ei mikið :P
er bara að þvælast heima að gera allt þetta skemmtilega, gefa kindum , bera út moð , moka skít vinna bíl undir málningu ( ekki minn ) bara að hafa það á hreinu :P
veit ekkert hvað ég á að segja svo ég segi bara Gerður skamm  :haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 02:24:39 / skripo

wtf blogg hér ?

jæja hvað er títt ?

veit svosem ekki hvað ég að að bulla hérna, en jæja ég fór á þorrablót um helgina, sem er ekki neitt athugavert miðað við árstíma ;):P
en já varð frekar sáttur því í firsta skiptið var almennilega minnst á mig á blótinu :D:D
en nóg um það
2 tilnefningar í tilefni að því og þær báðar í flokkinum danspar kvöldsins fyrir tilþrif;)

par 1 Berglind og Helga
par 2 einar og hólfríður

btw passið ykkur að vera ekki fyrir þegar þessi pör dansa þarna eru sko tilþrif í lagi :P

einsog  hefur áður gerst þurfti ég að hálf bera suma farþeganna og var þá 2 sem þurfti að koma út í bíl og innúr honum líka, er að ´pæla í að hafa bara léttara fólk í bílnum á næsta ári, það er svo mikið auðveldara ;)

berglind sry með skóinn, ætlaði ekki að síga á þig ;)

en ég nenni ekki að bulla meira er latur ;)
þannig að ég set bara inn svona skemmtun fyrir ykkur öll ;)

Spurningar:D allir að svara rosalega gaman:D

1. Hefuru slegið einhvern í andlitið?

2. Hve gamall/gömul ertu?

3. Frátekin/n eða einhleyp(ur)

4. Borðaru með höndunum eða notaru áhöld?

5. Dreymir þig á nóttunum?

6. Hefuru séð lík?

7. Hefuru óskað þess að einhver deyji?

8. Ertu að fíla Gogga Bush?

Nú þegar stöðluðu spurningarnar eru búnar, byrjum á góða stöffin!!

9. Hvaða speki hefuru á lífinu? Tekuru því of alvarlega?

10. Ef þú mættir gera hvað sem er með mér án þess að neinn fengi að vita af því hvað myndi það vera?

11. Treystiru lögreglunni?

12. Hlustaru á kántrí?

13. Hvað er þín besta minning sem þú átt með mér?

14. Ef þú gætir beytt einhverju í fari þínu, hvað myndi það vera?

15. Myndiru deita mig?

16. Í hverju sefuru?

17. Hefuru pissað í sundlaug meðan þú ert að synda?

18. Myndiru fela sönnunargögn fyrir mig?

19. Ef ég myndi deyja á morgun. Hvað myndir ÞÚ gera með mér í dag?

20. Hvað finnst þér best um mig?

21. Er ég hot?

22. Hvað er uppáhaldsliturinn þinn?

23. Ef þú gætir vakið eina mannveru til lífsins frá dauðum, hver myndi það vera?

 24. Segðu mér eina heimskulega/tilgangslausa staðreynd um þig.

25. Muntu endurpósta þessu svo ég geti svarað þér?


» 9 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 03:07:37 / skripo

howdy ppl

slappur bloggari, ég veit
en ég skal reyna að hafa´mi´g í að reyna að blogga aðeins meira en já helst að frétta af mér er það, ég er fluttur aftur "heim" í sveitina en það er svo langt frá því að vera ea einsog að vera heima hjá sér því það er ekkert nema skítkast og leiðindi en það verður bara að hafa það, það hér sem fer mest í taugarnar á mér er það að hafa ekki sítengingu, því það er nottla vænn skammtur af nöldri sem maður fær fyrir að vera að nota símalínuna fyrir internet en nóg um það ..

hérna kemur smáveigis af því að ég veit það að þig hafði ekkert betra að gera en að reyna ykkur við einhverja svona skemmtun einsog hér kemur á eftir, So dig in ;):P

ps þetta er heiðarlega stolið af netinu ;)

Fullt nafn??

Hvar kynntumst við??

Hversu lengi höfum við þekkst??

Hversu vel þekkirðu mig??

Á ég barn/börn??

Á ég dýr??

Trúi ég á guð??

Hvað hugsaðirðu fyrst þegar þú sást mig??

Aldur minn??

Afmælisdagur minn??

Háralitur??

Augnlitur??

Á ég systkini ef já hve mörg??

Hvað finnst mér best að borða??

Hefurðu einhver tímann öfundað mig??

Hvað finnst mér skemmtilegast að gera??

Mannstu eftir því fyrsta sem að ég sagði við þig??

Hver er mín uppáhalds hljómsveit/tónlistamaður??

Hver er minn best eiginleiki??

Hvort er ég feiminn eða mannblendinn??

Er ég fyndinn eða alvörugefinn??

Er ég uppreisnaseggur eða fylgi ég öllum lögum??

Einhverjir sérstakir hæfileikar sem ég hef??

Ef það væri eitthvað flott gælunafn á mig hvað væri það??

Hvað heldurðu að verði um mig í framtíðinni??

Hver er uppáhalds minningin þín um eitthvað sem að við höfum gert saman??

Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir í framtíðinni??



» 7 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 11:26:30 / skripo

svara plz

1. miðnafnið þitt:

2. Aldur:

3. Single or Taken:

4. Uppáhalds bíómynd:

5. Uppáhalds lag:

6. Uppáhaldshljómsveit:

7. Dirty or Clean:

8. Tattoo eða göt:

9. Þekkjumst við persónulega?

10. Hver er tilgangurinn með lífinu?

11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?

12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

13. Besta minningin þín um okkur?

14. Myndir þú gefa mér nýra?

15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?

17. Getum við hist og bakað köku?

18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?

20. Finnst þér ég góð manneskja?

21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?

22. Finnst þér ég aðlaðandi?

23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?

24. Í hverju sefuru?

25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?

26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?

27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?

28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?


» 11 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 06:36:54 / skripo

sein yfirferð vikunnar

já góðan daginn ;)

síðasta vika var meira en merkileg, já:S

mánudagur: rosalega sætur og fallegur dagur nema það að ég skrapp frá stöðvarfirði uppá hérað, og það endaði með því að það réðst brjálður ljósastaur á bílinn minn og stór beyglaði hann að framan :(

þriðujudagur: jáhh, minn var að keyra frá stöðvarfirði í áttina uppí egilsstaði, en hvað haldiði að hafi ekki skéð þá ?, jú veistu nei ykkur getur ekki hafa dottið það í hug ;) því þá ákvað felgan hægramegin að framan að gera sér upp klofin persónuleika og skipta sér í 2 og hlaupa frá bílnum :S 3  hjól undir bílnum ea  :(

en  já svo kemur miðvikudagurinn: þá var ég á leið heim í sveitina með pínu viðkomu uppí húsó, einsog gerist hjá Gömlum köllum :$ og þá lennti ég útaf í first skiptið í nokkur ár( hefur ekki skéð síðan ég var á 2 önn í VA)  , en nei það er ekki buið svo þeger á átti stutt eftir í Eiða, fyrir þá sem vita :P þá gerðist þetta óþægilega atvik aftur :(



en svona er lífið stundum koma brjálðair ljósastaura og ráðast á mann og stundum endar maður útí einhverju dullufeni.

munið að :

það sem ekki drepur mann styrkir mann ...... for u eve players JARRRRRRR :p


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 19:12:23 / skripo

leika sér að matnum ...

evening :P

jæja það er ágætt að það skuli gleðja fólk að ég komi hér og kroti ea rugl ;);)

og hver ætlar að bitchslappa mig ???

já það sem gerðist um síðustu helgi var, ég ákvað að  reyna að smala, og fór til tilbreytingar á Hesti :S, ótrúlegt, já ég kann víst ennþá að sitja hest og svona og var meiraðsegja með leiðinlegan hest í taumi, sem endaði að vísu með því að hann kippti mér af baki og ofan í grýttan lækjarfarveg sem var frekar mikið ái :cry:

en já þetta var svona eiginlega það eina sem var gert um helgina og svo verður næsta helgi í réttum og leiðindum. :(


nenni ekki að skrifa meira

"á morgun segir sá lati"


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 03:04:20 / skripo

í tilefni dagsins

já í tilefni dagsins datt mér í hug að kíkja inná síðuna, og sá þá að ....

fólki leiðist í skólum afþví að ég blogga ekki :S:S:S.... reyndar hélst ég fyrir að það væri bara eðlilegt að leiðast í skóla, en já freyja ég skal reyna að sjá hvort ég nenni eitthvað að halda lífi í þessari síðu :P
og já svo var það líka afþví að litla gerpið var ea að tjá sig :P ;)

já systa ég er að tala til þín

af mér er þetta helst að frétta að ég er:

farinn að vinna í aukaverkum hjá Vögg á fáskrúðsfirði við að keyra trailer

orðinn mesta eve-online nördið á stöðvarfirði

og akkurat núna er ég að pæla í því  hvort ég eigi að fara heim á morgun til að hlaupa meira um fjöll einsog einhver "bóndi"

er samt freka óviss með það því ég rústaði á mér hnénu í einni göngunni í haust og það er ekki gaman :frown::cry:

en nóg um það ef þið hafið einhevr comment um það hvað ég á að gera um helgina, látið mig vita ;)

og takið endilega þátt í skoðunnarkönnuni

munið:

sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 13:45:03 / skripo

;)

Þú veist að það er 2006 ef.....
1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.
2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.
3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er að því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .
4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta bara á takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.
7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.
8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.
9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.
10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.
11. Svo hlærðu af heimsku þinni.
12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu ... Aha ekkert svona fyrst að þú féllst fyrir þessu.


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 20:31:30 / skripo

hæbb

ég er lifandi , nettengingin hérna heima er ekki að standa sig.......

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 23:12:51 / skripo

Samvisku blogg

Góða kvöldið,

já ég viðurkenni að það er orðið Mjög langt síðan ég hef bloggað, en það er ástæður fyrir því, það er bæði buið að vera mikið að gera hjá mér og svo hefur tengingin ekki verið að gera sig, og svo var símanum lokað á tímabili til að toppa þetta allt saman

en hér er ég kominn, og hvað á ég að segja, jú það eru 3 kindur óbornar.

það eru bara orðnar einhverja 10 kindur eftir inni í heildina.

ég er buin að endur skipuleggja allt herbergið, og það stækkaði um helming8|

hef voða lítið annað að segja frá þannig að, síðar...


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 17:43:17 / skripo

Gurg

Halló,

Nú er ég pirraður og ætla að spyrja ykkur álits á hlut, stjúpi vakti mig kl 2 í dag, og ég er ekki sáttur því núna eru krakkarnir yngri systkyni mín kominn og þá ákveður einar/stjúpi að skella sér með þau og kellinguna í sund!!!!! hvað er málið ????? ég afþakkaði að fara með vinum í bíó og hann ákveður að skella sér í sund í tilefni af því að gullmolarnir eru komnir!!!!! ég er furyous yfir þessu, :evil::evil::evil::evil:

skiljiði hvað ég er að meina?

nóg um það litla greyið er látið því var ekki hugað langtíma líf

takk fyrir þau 5 atriði sem eru komin Halldór og Freyja

ég vil endilega fá álit ykkar allra á þessu og þið sem eruð ekki buin að koma með 5 álitin komið með þau

kv Furyous deamon.


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 02:23:37 / skripo

Kveldið

dagur stórra uppákoma, en dagurinn birjaði svona, þá hringdi Bára í mig og var að reyna að draga mig með sér og fleirra fólki í bíó, en þarsem það er mikið að gera í sveitinni þá varð ég að afþakka það boð, en á það bara vonandi inni.

svo um 9 í kvöld þá varð ég svoldið hissa það bar þar ær svo litlu lambi að ég hef aldrei séð það minna og lifandi, engu stærra en 1/2 líters gosflaska :S:S, síðan um 11 þá bar gemlingur lambi sem var ennþá minna, og það er minna en smjörlíkisstykki, (já ég bar það saman og það er líka léttara) en það er núna í kassa inní eldhúsi vafið inní handklæði og með 2 lítra coke flösku með heitu vatni við hliðina á sér til að halda á því hita. og það var sko ekkert grín að gefa svona litlu lambi að éta því ég varð að sprauta mjólkinni uppí það með lítilli bólusetningarsprautu :S og það tók hátt í 3 korter:S

þetta er svona það sem hefur verið markverðast við daginn í dag. ;)

Gullveig það er ljótt að plata:evil::evil:

Guðný: það var Mikið blóð með áherslu á Mikið. ;)

og að lokum 1 sem ég er að stela af síðu einhvernstaðar: nefnið 5 atriði sem koma first í hugan þegar þið heyrið Óskar Elv.

Margur er knár þótt hann sé smár. ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 02:42:08 / skripo

Góða Kvveldið

Já nú liggur bara vel á mér og ég er orðinn alveg óstjórnlega bjartsýnn, ég bara skil ekki alveg afhverju, en það er bara gaman að því ;););):P

já first koma fréttir úr sauðburði, hvað haldiði að hafi ekki skéð síðustu nótt, nei það getur ekki verið að þið getið mögulega. allavega ég fór út ferðina sem ég fer alltaf um 6 aðeins fyrr eða um 5:30 og þá var allt brjálað að bera og ég varð að rífa það af í hasti að taka 6 tvílembur frá sem voru að verða komnar í rugl og gaf mér ekki nægan tíma til að gaumgjæfa hvað væri að ské í nyrðstu krónni, en þegar ég var buin að koma því sem var borið frá og sprauta og setja lambboost í lömbin þá veitti ég því althygli að það var einhvernstaðar ær að bera í húsinu svo ég fór að leita og fann þá tvævetlu ræfil sem var að reyna að bera stórum hrút og það var bara haus sem var orðinn bólginn og 1 löpp, þannig að ég fór að toga og toga í lambið og það kom á endanum og í lagi með það. lít ég ekki við afþví að hún heldur áfram að rembast, og hugsaði með mér Haa annað lamb nje það getur ekki verið og fór með hendurnar að því sem kom út afþví að þegar lömbin fæðast þá tekur maður um snoppuna og tekur slímið og ógeðið af svo það fari ekki ofaní lungun... en nei þetta var ekki lamb, heldur legið úr rollunni og svo stóð ég bara uppi, útí fjárhúsi einn með legið úr rollunni í höndunum. hvað gera bændur þá? ég er ekki bóndi svo ég gat ekki ýmindað mér það, en ég mundi nokkur atriði sem mér var sagt þegar ég var minni og þau voru, halda því hreinu og láta einhvern ná í dýralækni til að setja það aftur inn á sinn stað, en þarsem ég var einn gat ég ekki sent neinn þá breytti ég þessu bara í huganum og hélt leginu hreinu, og hylgaði rolluna, (losaði allar festingarnar í sundur sem halda naflastrengum á sínum stað) og setti legið inní rolluna aftur. og núna er linir einhverjir 18 tímar síðan ég setti það inn og það er í fínu lagi með kindina og lambið. en va hvað það kom mikið blóð og :S:S:S:S:S ég var blóðugur uppað olnbogum á báðum höndum. en hún lifir og það er fyrir mestu ;);););) :D:D:D en nóg af sauðburðarfréttum af mér er það helst að frétta að ég rakaði mig, bæði í framan og á kollinum, þvílíkur léttir :):D

Gullveig ég skal ná í þig ef þú þorir að koma og hefur tíma til að vera einhvern tíma, gengur ekki að sækja þig fyrir minna en 2-3 daga. ef u yrðir á nætur vakt yrðiru ein með mér, en yrðiru á dagvakt þá yrðiru með stjúpa/Einari, Braga/hálfbróeinars og Moan monster/kellingunni hans einars. og lítið með mér.

látið í ykkur heyra, ef þið viljið eitthvað segja, það er betra að tala meira, heldur en bara þegja.

eða bara eitthvað bull

þangað til næst ;)

lifið í sátt


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan